
Frekari endurbætur á Borgarbraut í Borgarnesi
Fram undan eru áframhaldandi endurbætur á Borgarbraut í Borgarnesi í framhaldi af þeim hluta sem nú hefur verið malbikaður. Á næstu dögum/vikum er áætlað að endurnýja yfirborð á kafla frá gatnamótum Borgarbrautar og Böðvarsgötu og um 75 metra í norðaustur (sjá mynd). Framkvæmdin er í raun tvíþætt, annars vegar verður yfirborð fræst upp og hins vegar verður yfirborð malbikað. Hvor framkvæmd mun taka bróðurpart úr degi. Því verður um að ræða tvær lokanir á götunni, hvor fyrir sig um fimm til sjö klukkustundir yfir daginn. Á meðan á lokun stendur verður hjáleið um Kjartansgötu/ Þorsteinsgötu/ Skallagrímsgötu. Eins og staðan er í dag er ekki hægt að segja með vissu hvenær framkvæmdir hefjast þar sem veðrátta næstu daga hentar mögulega ekki til malbiksvinnu.