Fréttir

true

Síðan hef ég aldrei tekið lán!

Rætt við Hjört Óla Halldórsson sem fór fyrst á sjó fermingarárið sitt og hefur alltaf tekist á við lífið af æðruleysi og dugnaði. Hann á 95 ár að baki og nýtur ævikvöldsins í góðri umönnun á Dvalarheimilinu Fellaskjóli í Grundarfirði. Lítið hús – hamingjusöm æska Það var í nóvemberbyrjun árið 1929 sem Hjörtur Óli kom…Lesa meira

true

Djúp lægð og gul viðvörun um allt land frá því síðdegis á mánudag

Veðurspár gera nú ráð fyrir að djúp lægð taki sér stöðu fyrir austan land síðdegis á mánudag. Gul viðvörun tekur gildi þá og er í gildi fram yfir miðja vikunar, nánast eins og spátíminn nær. Orðrétt segir á vef Veðurstofunnar: „Undir kvöld á mánudag má búast við norðan- og norðvestan hvassviðri eða stormi (meðalvindur 15-23…Lesa meira

true

Fékk trilluveikina ungur að árum

Rætt við Árna Björn sem víða hefur komið við – og alltaf togar sjórinn Vopnfirðingurinn Árni Björn Einarsson hefur mest af starfsævinni verið sjálfstætt starfandi og líkar það vel. Hann er vélstjóri að mennt, hefur þvælst víða og fékk trilluveikina ungur að árum. Blaðamaður Skessuhorns heyrði í Árna á dögunum til að forvitnast aðeins meira…Lesa meira

true

„Sjórinn kallaði alltaf“

Rætt við Ómar Hafstein Magnússon, fiskmarkaðsstjóra á Akranesi. Margur væri farinn að huga að starfslokum sínum á 68. aldursári, enda er almenna reglan sú að fullur réttur til lífeyristöku miðist við 67 ára aldurinn. Fágætara er að fólk á þessum aldri hefji nýtt starf, sem meira að segja inniber flutninga milli byggðarlaga og gjörbreytingu á…Lesa meira

true

Launin voru á undan manni í Hólminn

Rætt við Smára Axelsson skipstjóra um lífið á sjónum Smári Axelsson býr í Stykkishólmi með konu sinni, Þórheiði Gunnlaugsdóttur, en saman eiga þau fjögur uppkomin börn; Bergþór, Gunnlaug, Hönnu Rún og Nökkva Frey ásamt fjölmörgum barnabörnum og tveimur langafabörnum. Smári er ekki að skafa að gestrisninni í heimsókn blaðamanns en þar var boðið upp á…Lesa meira

true

Ígildi dagsskammtar strandveiðibáts á vigtinni

Þau voru til í smá sprell krakkarnir í 4. bekk Brekkubæjarskóla á Akranesi fyrr í dag. Í vettvangsferð sinni heimsóttu þau meðal annars Fiskmarkað Íslands við höfnina á Akranesi. Þar sýndi Ómar H Magnússon umsjónarmaður markaðarins þeim fiska í körum og útskýrði nöfn ýmissa óvenjulegra fiska sem komið er með að landi. Svo bauð hann…Lesa meira

true

Hulunni brátt svipt af nýju rammaskipulagi fyrir Brákarey

Á upplýsingasíðu Borgarbyggðar kemur fram að Festir ehf. hafi nú lokið við gerð nýs rammaskipulags fyrir Brákarey í Borgarnesi og verður það kynnt í Hjálmakletti á opnum íbúafundi að kvöldi fimmtudagsins 6. júní. Þar mun Róbert Aron Róbertsson framkvæmdastjóri og Þorsteinn Ingi Garðarsson verkefnastjóri hjá Festi kynna skipulagið og í framhaldinu fara fram umræður. Lítið…Lesa meira

true

Byggðastofnun gerir ekki athugasemdir við lokun pósthúsa

Íslandspóstur ohf mun gera breytingar á afgreiðsluneti sínu á morgun, laugardaginn 1. júní. Breytingarnar felast aðallega í því að afgreiðslustöðum í fasteign, gömlu pósthúsunum, verður fækkað en afgreiðsla í póstbox og með bifreið verður aukin.  Pósthúsin sem um ræðir eru á Hvammstanga, Siglufirði, Dalvík, Ólafsfirði, Búðardal, Grundarfirði, Fáskrúðsfirði, Eskifirði, Breiðdalsvík og Neskaupstað. Samkvæmt tilkynningu frá…Lesa meira

true

Fimm verkefni á Vesturlandi fengu úthlutun úr Sprotasjóði

Sprotasjóður leik- grunn- og framhaldsskóla hefur úthlutað tæpum 60 milljónum króna til 32 skólaþróunarverkefna fyrir skólaárið 2024–2025. Af þeim eru fimm verkefni hér á Vesturlandi. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Bragi Þór Svavarsson, formaður stjórnar sjóðsins, afhentu styrkina við hátíðlega athöfn í mennta- og barnamálaráðuneytinu síðastliðinn fimmtudag. Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar…Lesa meira

true

Skipulagslýsing vegna Dalbrautarreits samþykkt og kynnt

Á fundi bæjarstjórnar Akraness sem haldinn var í gær var samþykkt að skipulagslýsing Dalbrautarreits vegna Stillholts 23 og Dalbrautar 2 verði auglýst og kynnt. Um er að ræða breytingu á núverandi deiliskipulagi sem samþykkt var í bæjarstjórn Akraness í október árið 2017. Tilgangur með gerð skipulagslýsingar er að tryggja aðkomu almennings og hagsmunaaðila að skipulagsferlinu…Lesa meira