
Fulltrúar styrkþega ásamt stjórn sjóðsins og ráðherra. Ljósm. Stjórnarráðið.
Fimm verkefni á Vesturlandi fengu úthlutun úr Sprotasjóði
Sprotasjóður leik- grunn- og framhaldsskóla hefur úthlutað tæpum 60 milljónum króna til 32 skólaþróunarverkefna fyrir skólaárið 2024–2025. Af þeim eru fimm verkefni hér á Vesturlandi. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Bragi Þór Svavarsson, formaður stjórnar sjóðsins, afhentu styrkina við hátíðlega athöfn í mennta- og barnamálaráðuneytinu síðastliðinn fimmtudag.