Byggðastofnun gerir ekki athugasemdir við lokun pósthúsa

Íslandspóstur ohf mun gera breytingar á afgreiðsluneti sínu á morgun, laugardaginn 1. júní. Breytingarnar felast aðallega í því að afgreiðslustöðum í fasteign, gömlu pósthúsunum, verður fækkað en afgreiðsla í póstbox og með bifreið verður aukin.  Pósthúsin sem um ræðir eru á Hvammstanga, Siglufirði, Dalvík, Ólafsfirði, Búðardal, Grundarfirði, Fáskrúðsfirði, Eskifirði, Breiðdalsvík og Neskaupstað. Samkvæmt tilkynningu frá Íslandspósti verða póstboxin orðin alls 100 talsins og eru þau sögð vinsælasti kosturinn hjá Póstinum í dag.

Byggðastofnun gerir ekki athugasemdir við lokun pósthúsa - Skessuhorn