
Brákarey. Ljósm. mm
Hulunni brátt svipt af nýju rammaskipulagi fyrir Brákarey
Á upplýsingasíðu Borgarbyggðar kemur fram að Festir ehf. hafi nú lokið við gerð nýs rammaskipulags fyrir Brákarey í Borgarnesi og verður það kynnt í Hjálmakletti á opnum íbúafundi að kvöldi fimmtudagsins 6. júní. Þar mun Róbert Aron Róbertsson framkvæmdastjóri og Þorsteinn Ingi Garðarsson verkefnastjóri hjá Festi kynna skipulagið og í framhaldinu fara fram umræður.