Talan er komin í 780 kíló, kallaði Ómar og þá var myndinni smellt af. Ljósm. mm

Ígildi dagsskammtar strandveiðibáts á vigtinni

Þau voru til í smá sprell krakkarnir í 4. bekk Brekkubæjarskóla á Akranesi fyrr í dag. Í vettvangsferð sinni heimsóttu þau meðal annars Fiskmarkað Íslands við höfnina á Akranesi. Þar sýndi Ómar H Magnússon umsjónarmaður markaðarins þeim fiska í körum og útskýrði nöfn ýmissa óvenjulegra fiska sem komið er með að landi. Svo bauð hann krökkunum í Prins Póló og Kókómjólk sem Krónan lagði til.

Ígildi dagsskammtar strandveiðibáts á vigtinni - Skessuhorn