Fréttir

true

Banaslys í Fnjóská

Tvítugur karlmaður, sem leitað hafði verið að eftir að hann féll í Fnjóská í gærkvöldi, fannst látinn í ánni í morgun. Fjölmennri leit björgunarsveitarfólks og annarra viðbragðsaðila var þá hætt. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að maðurinn hafi horfið vinum sínum sjónum í ánni á móts við bæinn Pálsgerði, yst í Dalsmynni, um kvöldmatarleytið…Lesa meira

true

Ferðafélag og skógræktarfélag taka höndum saman um stígagerð í Reykholtsskógi

Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs og Skógræktarfélag Borgarfjarðar (FFB) ætla að taka höndum saman um endurbætur og uppbyggingu göngustíga í skóginum í Reykholti í Borgarfirði. Gísli Einarsson forseti ferðafélagsins segir að í Reykholti hafi á síðustu áratugum verið ræktaður upp mikill og fallegur skógur. „Þar eru ágætis göngustígar en áhugi er fyrir því að gera hringleiðir til að…Lesa meira

true

Markaveisla enn á ný hjá Kára

Það er óhætt að segja að mörkunum hafi rignt í leik Kára og KFK í 3. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi þegar liðin áttust við í Akraneshöllinni. Það er ekki ýkja langt síðan sem Kári gerði 5-5 jafntefli við Vængi Júpiters í höllinni og aftur voru tíu mörk skoruð en að þessu sinni hafði…Lesa meira

true

„Það þarf að minna fólk á“

Sömdu bók um bataferli Sólrúnar Öldu eftir alvarlegan bruna Nemendur í 6. bekk Varmárskóla í Mosfellsbæ afhentu nú í vikunni Sólrúnu Öldu Waldorff bók sem þeir sömdu um batagöngu hennar frá því hún slasaðist alvarlega í eldsvoða fyrir tæpum fimm árum. Sólrún Alda heimsótti skólann fyrr í vetur og sagði börnunum sögu sína, en heimsóknin…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður styður eindregið útgáfu hvalveiðileyfis

Þriðjudaginn 28. maí síðastliðinn sendi matvælaráðuneytið beiðni til þriggja stofnana og 13 svokallaðra hagaðila, þar sem óskað er umsagna um umsókn Hvals hf. um leyfi til hvalveiða. Hvalur hf. sendi umsókn sína til ráðuneytisins 30. janúar síðastliðinn og á þeim tíma hafa tveir starfandi matvælaráðherrar lokað málið inni í ráðuneytinu, þær Katrín Jakobsdóttir og Bjarkey…Lesa meira

true

Fasteignamat hækkar mest á landsbyggðinni

Húsnæðis-og mannvirkjastofnun hefur birt fasteignamat fyrir árið 2025. Samkvæmt því hækkar heildarmat fasteigna um 6,0% á landinu öllu. Fasteignamat íbúða á höfuðborgarsvæðinu hækkar um 2,1% á milli ára, en hækkunin er 6,6% á landsbyggðinni. Mesta hækkunin er á fasteignamatinu í Flóahreppi (20,6%), Tálknafjarðarhreppi (20,0%) og í Skeiða- og Gnúpverjahreppi (19,8%). Fasteignamatið í Kjósarhreppi lækkar hins…Lesa meira

true

Glæsilegt vegglistaverk komið á Mural á Hellissandi

Nýr veitingastaður, sem heitir Mural, var opnaður á dögunum á Adventure Hótel Hellissandi. Veitingastaðurinn ber nafn sitt vegna þeirra fjölmörgu vegglistaverka sem er að finna á svæðinu. Undanfarna daga hefur listakonan Karen Ýr unnið myrkranna á milli, í ýmsum veðrum, við listaverkið sem nú er tilbúið. Verkið er vel sýnilegt frá þjóðveginum sökum þess að…Lesa meira

true

Lífið til sjós í gegnum linsu Alfons Finnssonar

Alfons Finnsson er færeysk ættaður Ólsari, sjóari og ljósmyndari. Alla tíð hefur hann verið viðloðandi sjó, byrjaði tíu ára að beita í landi en var fjórtán eða fimmtán ára þegar hann var fyrst munstraður um borð í bát. Áhuga fyrir ljósmyndun fékk hann í æsku. Foreldrar hans, Finnur og Svava, voru bæði dugleg að munda…Lesa meira

true

Dagstund á Arnarstapa

Skessuhorn fór á stúfana og kíkti miðvikudaginn 15. maí niður á bryggju á Arnarstapa. Nokkur fjöldi ferðamanna var gangandi um svæðið en niðri á bryggju voru hafnarstarfsmenn að störfum. Einn strandveiðibát hafði rekið upp á sker og sat þar fastur en strandveiðisjómaðurinn á bátnum var komin út og kallaði „halló!“ hátt og snjallt. Annar strandveiðibátur…Lesa meira

true

Var á frystitogaranum Höfrungi III í 24 ár

Skagamaðurinn Ingi Már Ingvarsson hóf störf hjá fyrirtækinu HB & Co um miðjan níunda áratuginn og var það fyrsti vinnustaður hans. Árið 1989 fór hann í nám í Fiskvinnsluskólann og útskrifaðist eftir tveggja ára nám sem fiskiðnaðarmaður. Þá fór hann að starfa hjá Krossvík, áður Haförninn, fyrst sem gæðastjóri og síðan sem verkstjóri í alls…Lesa meira