
Banaslys í Fnjóská
Tvítugur karlmaður, sem leitað hafði verið að eftir að hann féll í Fnjóská í gærkvöldi, fannst látinn í ánni í morgun. Fjölmennri leit björgunarsveitarfólks og annarra viðbragðsaðila var þá hætt. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að maðurinn hafi horfið vinum sínum sjónum í ánni á móts við bæinn Pálsgerði, yst í Dalsmynni, um kvöldmatarleytið í gær. Um tvö hundruð manns tóku þátt í leitinni. Rannsókn málsins er í höndum lögreglu.