
Heildarhækkun fasteignamats eftir landshlutum. Graf: HMS
Fasteignamat hækkar mest á landsbyggðinni
Húsnæðis-og mannvirkjastofnun hefur birt fasteignamat fyrir árið 2025. Samkvæmt því hækkar heildarmat fasteigna um 6,0% á landinu öllu. Fasteignamat íbúða á höfuðborgarsvæðinu hækkar um 2,1% á milli ára, en hækkunin er 6,6% á landsbyggðinni. Mesta hækkunin er á fasteignamatinu í Flóahreppi (20,6%), Tálknafjarðarhreppi (20,0%) og í Skeiða- og Gnúpverjahreppi (19,8%). Fasteignamatið í Kjósarhreppi lækkar hins vegar um 1,5% milli ára. Af einstökum landshlutum hækkar matið mest á Vestfjörðum, eða um 11%. Hér á Vesturlandi hækkar matið um 7%.