
Akraneskaupstaður styður eindregið útgáfu hvalveiðileyfis
Þriðjudaginn 28. maí síðastliðinn sendi matvælaráðuneytið beiðni til þriggja stofnana og 13 svokallaðra hagaðila, þar sem óskað er umsagna um umsókn Hvals hf. um leyfi til hvalveiða. Hvalur hf. sendi umsókn sína til ráðuneytisins 30. janúar síðastliðinn og á þeim tíma hafa tveir starfandi matvælaráðherrar lokað málið inni í ráðuneytinu, þær Katrín Jakobsdóttir og Bjarkey Ólsen Gunnarsdóttir. Að öllu óbreyttu hefðu hvalveiðar átt að hefjast nú í júní.
Annað af þeim sveitarfélögum sem óskað var umsagnar frá er Akraneskaupstaður. Umsögn kaupstaðarins er afdráttarlaus: „Akraneskaupstaður styður eindregið útgáfu veiðileyfis til Hvals hf og harmar mjög þann drátt sem hefur orðið á afgreiðslu málsins.“ Þá segir í umsögn Akraneskaupstaðar að ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar liggi fyrir um veiðar og nýtingu hvalastofnsins. „Stöðvun hvalveiða sl. sumar og dráttur á útgáfu heimildar til veiða hefur eðlilega haft slæm áhrif á atvinnulíf á Akranesi. Allt frá stöðvun veiða í júní 2023 hefur bæjarstjórn mótmælt þeirri stöðu sem kom upp fyrir fjölda manns og fyrirtæki sem hafa með beinum og óbeinum hætti orðið fyrir tjóni er veiðar voru stöðvaðar fyrirvaralaust. Dráttur á útgáfu veiðileyfis nú mun hafa mikil áhrif á atvinnulíf á Akranesi og þar með á hag bæjarsjóðs. Bæjarráð Akraness telur engar málefnanlegar ástæður liggja að baki því fálæti sem matvælaráðherra sýnir hagsmunum okkar byggðarlags og harmar mjög þá stöðu sem komin er upp,“ segir í umsögn Akraneskaupstaðar.