
Í vettvangsferð í Reykholtsskógi þar sem Geir Waage sýndi gestum skóginn. Ljósm. ge
Ferðafélag og skógræktarfélag taka höndum saman um stígagerð í Reykholtsskógi
Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs og Skógræktarfélag Borgarfjarðar (FFB) ætla að taka höndum saman um endurbætur og uppbyggingu göngustíga í skóginum í Reykholti í Borgarfirði. Gísli Einarsson forseti ferðafélagsins segir að í Reykholti hafi á síðustu áratugum verið ræktaður upp mikill og fallegur skógur. „Þar eru ágætis göngustígar en áhugi er fyrir því að gera hringleiðir til að fólki njóti þess enn frekar að ganga þar um. Stjórn FFB fékk áskorun frá félagsmönnum um að félagið beitti sér fyrir gerð göngustíga í Reykholtsskógi. Á síðasta fundi stjórnar var samþykkt að óska eftir samstarfi við Skógræktarfélag Borgarfjarðar sem hefur umsjón með skóginum,“ segir Gísli.