Markskorarar Kára í leiknum gegn KFK. Frá vinstri, Björn Darri, Hektor Bergmann, Mikael Hrafn, Oskar og Sveinn Svavar. Ljósm. vaks

Markaveisla enn á ný hjá Kára

Það er óhætt að segja að mörkunum hafi rignt í leik Kára og KFK í 3. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi þegar liðin áttust við í Akraneshöllinni. Það er ekki ýkja langt síðan sem Kári gerði 5-5 jafntefli við Vængi Júpiters í höllinni og aftur voru tíu mörk skoruð en að þessu sinni hafði Kári sigur, lokatölur 7-3, í ótrúlegum leik.

Markaveisla enn á ný hjá Kára - Skessuhorn