
„Það þarf að minna fólk á“
Sömdu bók um bataferli Sólrúnar Öldu eftir alvarlegan bruna
Nemendur í 6. bekk Varmárskóla í Mosfellsbæ afhentu nú í vikunni Sólrúnu Öldu Waldorff bók sem þeir sömdu um batagöngu hennar frá því hún slasaðist alvarlega í eldsvoða fyrir tæpum fimm árum. Sólrún Alda heimsótti skólann fyrr í vetur og sagði börnunum sögu sína, en heimsóknin var liður í verkefni um eldvarnir. Í kjölfarið ákváðu þrjár stúlkur að taka viðtal við Sólrúnu Öldu og semja um hana heila bók sem þær nú afhentu henni.
„Þetta er svolítið skrítið,“ segir Sólrún Alda um bókina; „en mér finnst frábært að svona ungar stelpur hafi áhuga á að vera öruggar og hafi áhuga á eldvörnum.“
En er auðvelt fyrir þig að koma í skólann og segja sögu þína? „Nei, það er ekki auðvelt! En mér finnst þetta mikilvægt. Ég held að fólk pæli ekkert mikið í eldvörnum og því að vera öruggt. Maður heldur alltaf að þetta komi ekki fyrir sig,“ segir Sólrún Alda.
Sólrúnu Öldu var haldið sofandi í heilan mánuð eftir að henni var bjargað úr eldsvoða í Hlíðunum í Reykjavík haustið 2019. Hún hlaut alvarleg brunasár og var um tíma ekki hugað líf. Hún hefur síðan verið í endurhæfingu og gengið í gegnum fjölmargar húðágræðslur. Skólaheimsóknin er einn liður í bataferlinu.
Erfitt að skrásetja reynslu Sólrúnar Öldu
Eldvarnir eru meðal þess sem fjallað er um í útikennslu í Varmárskóla og áttu lokaverkefni nemenda að snúa að því. En hvers vegna völdu ellefu ára stelpur einmitt þetta viðfangsefni? „Við ætluðum bara að gera verkefni um eldvarnir, af því að hún Sólrún Alda lenti í eldsvoða,“ segir Linddís Lilja Dal Lárusdóttir. Saga Pála Guðjónsdóttir bætir við að það verði að vera greiðar útgönguleiðir ef eldur kemur upp, sýnileg slökkvitæki og reykskynjarar í öllum herbergjum ef það skyldi kvikna í: „Það þarf að minna fólk á þetta.“ En var þetta erfitt verkefni? „Ég myndi ekki segja að það hafi verið erfitt að búa bókina til,“ segir Lóa Birna Bogadóttir; „en það var erfitt að sjá hvað hún Sólrún Alda er mikið brunnin.“ „Og í hverju hún lenti,“ bætir Saga Pála við.