Fréttir

true

Fyrirhugaðir búferlaflutningar kannaðir á Vesturlandi

Í nýlegri íbúakönnun, sem Vífill Karlsson hagfræðingur SSV er að vinna, var leitað vísbendinga um væntanlega búferlaflutninga fólks vítt og breitt um landið. Í þeim tilgangi var spurt: „Finnst þér líklegt eða ólíklegt að þú eigir eftir að flytja búferlum á næstu tveimur árum?“ Niðurstaðan á Vesturlandi er áhugaverð. Á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit eru…Lesa meira

true

Skallagrímur úr leik eftir tap gegn Þór

Þór Akureyri og Skallagrímur tókust á í fimmtu viðureign liðanna í 8-liða úrslitum úrslitakeppni fyrstu deildar karla í körfuknattleik á laugardagskvöldið. Leikið var í Höllinni fyrir norðan og voru yfir þrjú hundruð manns mætt til að horfa á leikinn og þriðjungurinn kom frá Borgarnesi. Skallarnir náðu að jafna metin í 2-2 í einvíginu síðasta miðvikudag…Lesa meira

true

Stefán Bjarki Akranesmeistari í pílu 2024

Akranesmeistaramótið í 501 í pílu var haldið um helgina í aðstöðu Pílufélags Akraness í gamla Sementinu við Mánabraut. 18 keppendur voru skráðir til leiks sem var ansi góð þátttaka. Spilað var í tveimur riðlum og síðan var 16 manna útsláttarkeppni eftir það. Margir voru að spila á sínu fyrsta meistaramóti hjá Pílufélagi Akraness og má…Lesa meira

true

Vegaskemmdir eftir asahláku á laugardaginn

Á laugardaginn snögghitnaði í veðri samhliða sunnan roki og hellirigningu víða um vestanvert landið. Snjó tók því hratt upp. Ár urðu sem stjórfljót yfir að líta. Nokkuð víða höfðu vegræsi ekki undan skyndilegu leysingavatninu og dæmi um að vegir hafi grafist í sundur. Meðfylgjandi myndir voru teknar á Snæfellsnesi næsta dag. Aurskriða hafði fallið niður…Lesa meira

true

Fengu gull á vorbikarmótaröð í hnefaleikum

Hnefaleikafélag Akraness sendi tvo keppendur á vorbikarmótaröð Hnefaleikasambands Íslands í vetur en það voru þeir Viktor Orri Pétursson sem keppti í -57 kg flokki í U19 og Björn Jónatan Björnsson sem keppti í -60 kg í U17. Þeir sigruðu báðir í sínum flokkum og fengu glæsilega bikara í verðlaun. Bikarmótaröðin er með því sniði að…Lesa meira

true

Lúðrasveit lék fyrir Borgnesinga

Það kom mörgum Borgnesingum skemmtilega á óvart á laugardagsmorgun þegar lúðrasveit marseraði niður Borgarbrautina. Einhverjir höfðu það á orði að þarna væri á ferðinni mótmæli vegna seinagangs í framkvæmdum við lagfæringar á sjálfri Borgarbrautinni, en síðar kom í ljós að þarna var æfingaferð Lúðrasveitar Vesturbæjar- og Miðbæjar úr Reykjavík. Lúðrasveitin hafði spilað fyrir leikskóla og…Lesa meira

true

Skagamenn í öðru sæti eftir stórsigur á Fylki

ÍA tók á móti Fylki í þriðju umferð Bestu deildarinnar í knattspyrnu að viðstöddum yfir sex hundruð áhorfendum í Akraneshöllinni í gær og var frekar þröngt á þingi. Leikurinn byrjaði fjörlega og Skagamenn komust yfir strax á 11. mínútu þegar Hinrik Harðarson fékk boltann vinstra megin, hann tók á rás og skaut föstu skoti niðri…Lesa meira

true

Línur teknar að skýrast í baráttunni um Bessastaði

Fjórir af væntanlegum forsetaframbjóðendum mælast með áberandi mest fylgi í nýrri skoðanakönnun Prósents sem gerð var fyrir Morgunblaðið og birt í morgun. Könnunin var gerð dagana 16.-21. apríl. Frestur til að skila inn framboðum rennur út næstkomandi föstudag en átta höfðu skilað inn framboði með tilskyldum fjölda meðmælenda fyrir síðustu helgi. Í kjölfar frestsins, sem…Lesa meira

true

Fimm kóra mót var haldið á Akranesi

Síðastliðinn laugardag var mikið sungið á Akranesi. Þá fékk Hljómur, kór félags eldri borgara á Akranesi, fjóra gestakóra í heimsókn og blásið var til árlegra söngtónleika í sal Fjölbrautaskóla Vesturlands. Gestakórarnir voru: Eldey á Suðurnesjum, Hörpukórinn í Árborg, Gaflarakórinn í Hafnarfirði og Vorboðar í Mosfellsbæ, alls 150 manns. „Þarna sýndu og sönnuðu þátttakendur að aldur…Lesa meira

true

Borgfirðingar tóku á móti Rangæingum í Brún

Síðastliðinn laugardag var spilað bridds í félagheimilinu Brún í Bæjarsveit. Gestgjafarnir voru Bridgefélag Borgarfjarðar en gestir komu frá Bridgefélagi Rangæinga. Fjórar sveitir voru frá hvoru félagi. Spilamennskan hófst eftir hádegi og spilað var fram á kvöld. Þetta er fyrsti hittingur þessara félaga en ákveðið að gera hana að árlegum viðburði eftir þetta, enda tókst vel…Lesa meira