Fréttir

true

Skýlaus krafa um að leyfi til hvalveiða verði tafarlaust gefið út

Leyfi til hvalveiða í sumar hefur enn ekki verið gefið út í matvælaráðuneytinu þrátt fyrir að lög um hvalveiðar séu afdráttarlaus og óskað hafi verið eftir leyfinu í lok janúar. Eins og fram hefur komið tók Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir VG við stöðu matvælaráðherra við síðustu hrókeringar í ríkisstjórn. Katrín Jakobsdóttir samflokkskona hennar hafði þá gegnt…Lesa meira

true

KSÍ og Jóhannes Karl framlengja

Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, hefur samið við Jóhannes Karl Guðjónsson um framlengingu á samningi hans sem aðstoðarþjálfari A landsliðs karla í knattspyrnu. Samningurinn gildir út nóvember 2025, en framlengist sjálfkrafa ef Ísland er í umspili um sæti í lokakeppni HM 2026 og framlengist einnig ef Ísland kemst í lokakeppni HM 2026. Skagamaðurinn Jóhannes Karl, sem var…Lesa meira

true

Komu heim hlaðin verðlaunum af ÍM50 í sundi

Gott gengi var hjá sundfólki frá ÍA á Íslands- og unglingameistaramótinu í sundi í 50 metra laug sem fram fór í Reykjavík um helgina. Kom hópurinn heim með Íslandsmeistaratitil, Akranesmet, fjögur silfur og 15 brons. Tíu sundmenn frá ÍA tóku þátt á mótinu, en keppendur voru alls 183 frá 16 félögum. Bestum árangri náði Einar…Lesa meira

true

Auglýsa störf nýliða í slökkviliðinu

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar auglýsir nú eftir umsóknum frá nýliðum til starfa. „Auglýst er eftir nýliðum til starfa til að sinna útkallsverkefnum slökkviliðsins. Sérstaklega er óskað eftir aðilum á aldrinum 21-28 ára og eru einstaklingar af öllum kynjum hvött til þess að sækja um,“ segir í tilkynningu. Kynningarfundur um starfið verður haldinn á Slökkvistöð Akraness…Lesa meira

true

Nýjar verklagsreglur um flutning á lömbum

Matvælastofnun hefur vakið athygli á því að verklagsreglur fyrir flutning á lömbum með verndandi eða mögulega verndandi arfgerðir hafi verið endurskoðaðar og eru nýjar reglur að finna undir flipanum „Bændur“ á heimasíðu Matvælastofnunar. Nokkrar breytingar hafa verið gerðar, t.d. hvað varðar mögulega verndandi arfgerðir. Þeim arfgerðum sem flytja má hefur verið fjölgað. Einnig hafa verið…Lesa meira

true

Karlakórinn Heiðbjört lýkur vetri í Reykholti

Karlakórinn Heiðbjört hefur í allmörg ár lokið vetrarstarfi sínu með tónleikum á síðasta vetrardag í sinni heimabyggð, á sunnanverðu Snæfellsnesi. Í tilkynningu frá kórnum kemur fram að í ár hafa kórmeðlimir ákveðið að leggja land undir fót og stefna galvaskir í Borgarfjörðinn, nánar tiltekið í Reykholtskirkju, 24. apríl, á síðasta vetrardag. Kórinn samanstendur af körlum…Lesa meira

true

Búið að ráða viðburðastjóra

Á fundi menningar- og safnanefndar Akraneskaupstaðar síðasta miðvikudag kom fram hjá Veru Líndal verkefnastjóra að Hjörvar Gunnarsson og Valdimar Ingi Brynjarsson hafa verið ráðnir í starf viðburðastjóra fyrir 17. júní og Írska daga sem fara fram 4.-7. júlí 2024. Menningar- og safnanefnd lýsti yfir mikilli ánægju með ráðninguna og ber miklar væntingar til framúrskarandi hátíðarhalda.Lesa meira

true

Bjarki Pétursson varð í sjöunda sæti

Atvinnugolfarinn Bjarki Pétursson endaði í sjöunda sæti á Sand Valley meistaramótinu sem fór fram dagana 11. -13. apríl á samnefndum velli í Póllandi. Mótið var annað af þremur sem fer fram á þessum golfvelli á næstu dögum. Bjarki endaði samtals á 9 höggum undir pari vallar en sigurvegari mótsins lék samtals á 17 höggum undir…Lesa meira

true

Snæfell kom sér inn í einvígið gegn Tindastól

Þriðji leikur Snæfells og Tindastóls, í undanúrslitum fyrstu deildar kvenna, fór fram í Stykkishólmi í gær. Tindastóll hafði unnið tvo fyrstu leiki liðanna en fyrsta liðið til að vinna þrjá sigra fer í úrslit, gegn annað hvort KR eða Aþenu. Bæði lið virtust vera nokkuð ótengd í byrjun leiks en fjórir tapaðir boltar litu dagsins…Lesa meira

true

Gleði og glaumur á söngleiknum Grease

Leiklistarklúbburinn Melló í Fjölbrautaskólanum á Akranesi frumsýndi söngleikinn Grease síðasta föstudag í Bíóhöllinni. Næstu sýningar eru í kvöld, mánudag, og á morgun þriðjudag og er uppselt á þær. Fimmta sýningin verður síðan á föstudag klukkan 20 sem einnig er uppselt á, sjötta sýning er síðan á sunnudag klukkan 17 og sjöunda sýning er á mánudag…Lesa meira