
Fjárrekstur af fjalli. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Ljósm. mm
Nýjar verklagsreglur um flutning á lömbum
Matvælastofnun hefur vakið athygli á því að verklagsreglur fyrir flutning á lömbum með verndandi eða mögulega verndandi arfgerðir hafi verið endurskoðaðar og eru nýjar reglur að finna undir flipanum „Bændur“ á heimasíðu Matvælastofnunar. Nokkrar breytingar hafa verið gerðar, t.d. hvað varðar mögulega verndandi arfgerðir. Þeim arfgerðum sem flytja má hefur verið fjölgað. Einnig hafa verið gerðar breytingar hvað varðar flutninga á svæðum innan riðuhólfs þar sem riða hefur greinst á síðustu sjö árum.