
Gleði og glaumur á söngleiknum Grease
Leiklistarklúbburinn Melló í Fjölbrautaskólanum á Akranesi frumsýndi söngleikinn Grease síðasta föstudag í Bíóhöllinni. Næstu sýningar eru í kvöld, mánudag, og á morgun þriðjudag og er uppselt á þær. Fimmta sýningin verður síðan á föstudag klukkan 20 sem einnig er uppselt á, sjötta sýning er síðan á sunnudag klukkan 17 og sjöunda sýning er á mánudag klukkan 20.