Hvalskurður á plani. Ljósm. úr safni/mm

Skýlaus krafa um að leyfi til hvalveiða verði tafarlaust gefið út

Leyfi til hvalveiða í sumar hefur enn ekki verið gefið út í matvælaráðuneytinu þrátt fyrir að lög um hvalveiðar séu afdráttarlaus og óskað hafi verið eftir leyfinu í lok janúar. Eins og fram hefur komið tók Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir VG við stöðu matvælaráðherra við síðustu hrókeringar í ríkisstjórn. Katrín Jakobsdóttir samflokkskona hennar hafði þá gegnt embættinu um tíma í veikindaleyfi Svandísar Svavarsdóttur sem tók við innviðaráðuneytinu við endurkomu hennar á þing í byrjun mánaðarins. Bjarkey Olsen sætir nú miklum þrýstingi samstarfsflokka hennar í ríkisstjórn um að heimila hvalveiðar án frekari tafa.