
Karlakórinn Heiðbjört lýkur vetri í Reykholti
Karlakórinn Heiðbjört hefur í allmörg ár lokið vetrarstarfi sínu með tónleikum á síðasta vetrardag í sinni heimabyggð, á sunnanverðu Snæfellsnesi. Í tilkynningu frá kórnum kemur fram að í ár hafa kórmeðlimir ákveðið að leggja land undir fót og stefna galvaskir í Borgarfjörðinn, nánar tiltekið í Reykholtskirkju, 24. apríl, á síðasta vetrardag.