Fréttir

true

Engar umsóknir bárust um rekstur sundlaugarinnar að Hlöðum

Á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar í gær kom fram að engar umsóknir bárust um rekstraraðila sundlaugarinnar að Hlöðum í sumar. Fjölskyldu- og frístundanefnd hafði lagt til við sveitarstjórn að greina kosti þess og galla að sveitarfélagið myndi sjá um rekstur sundlaugarinnar að Hlöðum. Á fundinum lagði Andrea Ýr Arnardóttir oddviti fram eftirfarandi tillögu: „Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir…Lesa meira

true

Anna Lea og Halldór Emil unnu upplestrarkeppnina

Lokahátíð Upplestrarkeppni grunnskólanna á Akranesi fyrir árið 2024 var haldin í Tónbergi í gærkvöldi fyrir nánast fullu húsi. Tólf nemendur í 7. bekk sem valdir höfðu verið eftir undankeppni úr Brekkubæjarskóla og Grundaskóla tóku þátt og voru sex nemendur frá hvorum skóla. Frá Brekkubæjarskóla lásu Anna Lea Halldórsdóttir, Bryndís Lilja Gautadóttir, Davíð Antti Liljar Geirsson,…Lesa meira

true

Allir fulltíða Lunddælingar hafa skrifað undir vegaáskorun

Undanfarið hafa íbúar í Lundarreykjadal í Borgarfirði safnað undirskriftum til að knýja á um að malarvegir í dalnum verði lagfærðir. Nú er svo komið að allir fulltíða Lunddælir, sem í hefur náðst, hafa skrifað undir og verða undirskriftirnar afhentar Pálma Sævarssyni umdæmisstjóra Vegagerðarinnar í dag. „Eins og gefur að skilja er afleitt ástand malarveganna ástæða…Lesa meira

true

Leggja til aukið valfrelsi um ráðstöfum viðbótarlífeyris sparnaðar

Í drögum sem fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt fram í samráðsgátt er lagt til að frelsi fólks til ávöxtunar á séreignarsparnaði verði aukið. Lagt er til að vörsluaðilum séreignarsparnaðar verði heimilað að verða við beiðni einstaklings um að iðgjöldum hans til séreignar verði varið til fjárfestingar í tilteknum sjóði eða sjóðum um sameiginlega fjárfestingu. Það hefur í…Lesa meira

true

Góður árangur glímufólks úr Dölunum

Bikarameistaramót Glímusambands Íslands fór fram á Blönduósi 17. febrúar síðastliðinn. Glímufélag Dalamanna (GFD) sendi vænan hóp á mótið og uppskáru keppendur góðan árangur og ekki að sjá annað en þetta hafi verið góður dagur. Mótið var fjölmennt og voru glímdar vel á annað hundrað viðureignir. Árangur iðkenda má sjá hér að neðan: 3. sæti 12…Lesa meira

true

„Ég var alltaf álitinn bölvaður óþekktarormur“

Sest niður í spjall með sjómanninum og elsta Grundfirðingnum, Alfreð Ragnari Magnússyni Alfreð verður 94 ára í júní næstkomandi. Heilsan er þokkaleg, en sjónin nánast farin. Minnið er hins vegar óbilandi. Hann hefur búið á heimaslóðum alla tíð og ber hlýjan hug til heimahaganna; þar líður honum best. Blaðamaður Skessuhorns leit við hjá honum og…Lesa meira

true

Gera í rólegheitunum klárt fyrir grásleppuveiðar

Það er kominn vorhugur í þá félaga Árna Einarsson og Finn Arnar Ástgeirsson, en þeir stefna á grásleppuveiðar. Voru þeir í gærmorgun að yfirfæra grásleppunetin í skúrnum hjá Árna sem gerir út bátinn Hjördísi SH frá Ólafsvík. „Við leggjum netin þegar spáin verður góð, en hún er ekki góð fyrir næstu daga. Við gerum bara…Lesa meira

true

„Öðlaðist kraft til að treysta á sjálfan mig“

Rætt við Áslaugu Þorvaldsdóttur úr Borgarnesi sem nú býr á Spáni Það eru liðin nokkur ár síðan blaðamaður hefur hitt á Áslaugu Þorvaldsdóttur, en hún hefur verið búsett í borginni Torrevieja á Spáni síðastliðin ár. Áslaug er fædd í Borgarnesi og hefur búið þar meira og minna alla sína ævi og er vel þekkt í…Lesa meira

true

Sjammi átti lægsta tilboð í nýbyggingu við Kleppjárnsreykjaskóla

Tilboð voru opnuð í framkvæmdir við niðurrif og nýbyggingu við Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum, í Ráðhúsi Borgarbyggðar í dag. Orri Jónsson, svæðistjóri Eflu á Vesturlandi, fór yfir gögnin sem bárust. Alls voru sex tilboð sem bárust en fyrirliggjandi kostnaðaráætlun hönnuða hljóðaði upp á 978,9 milljónir króna. Lægsta tilboð var frá Sjamma ehf. á Akranesi, en…Lesa meira

true

Embla Rós og Anna Lísa í úrslit söngkeppni Samfés

Söngkeppni félagsmiðstöðva á Vesturlandi fór fram í gær á Reykhólum og voru tólf frábær atriði skráð til þátttöku. Fjölbreytnin var mikil og mátti sjá hljómsveitir, söngvara og rappara stíga á svið og reyna að heilla dómnefndina. Efstu tvö sætin í keppninni unnu sér inn sæti í Söngkeppni Samfés sem fram fer í Laugardalshöll 4. maí…Lesa meira