
Sundlaugin að Hlöðum við Hvalfjarðarströnd. Ljósm. úr safni
Engar umsóknir bárust um rekstur sundlaugarinnar að Hlöðum
Á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar í gær kom fram að engar umsóknir bárust um rekstraraðila sundlaugarinnar að Hlöðum í sumar. Fjölskyldu- og frístundanefnd hafði lagt til við sveitarstjórn að greina kosti þess og galla að sveitarfélagið myndi sjá um rekstur sundlaugarinnar að Hlöðum.