
Gera í rólegheitunum klárt fyrir grásleppuveiðar
Það er kominn vorhugur í þá félaga Árna Einarsson og Finn Arnar Ástgeirsson, en þeir stefna á grásleppuveiðar. Voru þeir í gærmorgun að yfirfæra grásleppunetin í skúrnum hjá Árna sem gerir út bátinn Hjördísi SH frá Ólafsvík. „Við leggjum netin þegar spáin verður góð, en hún er ekki góð fyrir næstu daga. Við gerum bara klárt í rólegheitunum, en grásleppuveiðar máttu hefjast 1. mars í ár og hefur einn bátur Magnús HU þegar byrjað veiðar í Ólafsvík. Aflinn hefur verið þokkalegur.