
Byggingin til vinstri verður rifin og ný byggð á sömu lóð. Ljósm. mm
Sjammi átti lægsta tilboð í nýbyggingu við Kleppjárnsreykjaskóla
Tilboð voru opnuð í framkvæmdir við niðurrif og nýbyggingu við Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum, í Ráðhúsi Borgarbyggðar í dag. Orri Jónsson, svæðistjóri Eflu á Vesturlandi, fór yfir gögnin sem bárust. Alls voru sex tilboð sem bárust en fyrirliggjandi kostnaðaráætlun hönnuða hljóðaði upp á 978,9 milljónir króna. Lægsta tilboð var frá Sjamma ehf. á Akranesi, en það hljóðaði upp á 1.061 milljón króna, eða 8,4% yfir kostnaðaráætlun. Fram kom við opnun tilboða að farið verði yfir þau gögn sem bárust en búast má við endanlegum niðurstöðum um val á verktaka á næstu dögum.