
Allir fulltíða Lunddælingar hafa skrifað undir vegaáskorun
Undanfarið hafa íbúar í Lundarreykjadal í Borgarfirði safnað undirskriftum til að knýja á um að malarvegir í dalnum verði lagfærðir. Nú er svo komið að allir fulltíða Lunddælir, sem í hefur náðst, hafa skrifað undir og verða undirskriftirnar afhentar Pálma Sævarssyni umdæmisstjóra Vegagerðarinnar í dag. „Eins og gefur að skilja er afleitt ástand malarveganna ástæða þessarar undirskriftasöfnunar. Það verður hins vegar að játast að Vegagerðin sló dálítið vopnin úr höndunum á okkur því í fyrradag fréttum við að verið væri að undirbúa vinnslu efnis til að bera ofan í vegina,“ segir Jón Gíslason á Lundi í samtali við Skessuhorn.