Fréttir

true

Staða framkvæmda á Vestfjarðavegi um Gufudalssveit og Dynjandisheiði

Í nýjum Framkvæmdafréttum Vegagerðarinnar er farið yfir stöðuna á vegaframkvæmdum á sunnanverðum Vestfjörðum og sagt að þær séu komnar á góðan rekspöl. Smám saman eru að verða til margfalt betri vegir um svæðið sem mun í framtíðinni m.a. bæta skilyrði til búsetu; flutninga vegna atvinnustarfsemi og auka ferðaþjónustu. Borgarverk vinnur að fyllingum í Djúpafirði og…Lesa meira

true

Vel mætt á Höfðagleði

Síðasta föstudagskvöld var haldin Höfðagleði á hjúkrunar- og dvalarheimilinu við Sólmundarhöfða á Akranesi. Þar komu saman fyrrverandi og núverandi starfsfólk ásamt núverandi heimilisfólki. Þriggja rétta kvöldverður var í boði, happdrætti með veglegum vinningum og skemmtiatriði. Veislustjóri var Gísli Gíslason fyrrum bæjarstjóri og fór hann á kostum að sögn viðstaddra.Lesa meira

true

Skagamenn unnu Ármenninga í spennuleik

Ármann og ÍA tókust á í hörkuviðureign í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og var leikurinn í Laugardalshöllinni. Skagamenn höfðu tapað þremur leikjum í röð í deildinni og þurftu því nauðsynlega á sigri að halda til að koma sér á rétta braut á ný. Leikurinn fór hægt af stað og liðin skiptust á…Lesa meira

true

Opið hús þar sem atvinnulóðir við Vallarás voru kynntar

Síðastliðinn fimmtudag stóð Borgarbyggð fyrir kynningu og umræðu um nýtt atvinnusvæði við Vallarás í Borgarnesi. Vallarás er iðnaðar- og athafnasvæði og efsti hluti byggðarinnar í Borgarnesi og liggur næst hesthúsahverfinu. Svæðið liggur vel við umferð, er á krossgötum vestur, norður og suður. Að sögn Stefáns Brodda Guðjónssonar sveitarstjóra Borgarbyggðar, eru gríðarlegir möguleikar fólgnir í svæðinu…Lesa meira

true

Öxulþungatakmarkanir taka gildi í fyrramálið

Vegna hættu á slitlagsskemmdum verður viðauki 1 felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn frá og með kl: 10:00 á morgun, þriðjudaginn 5. mars, á eftirtöldum leiðum á Vesturlandi og Vestfjörðum: 50 Borgarfjarðarbraut frá Seleyri að hringvegi við Bauluskála 51 Akrafjallsvegi frá Urriðaá að Berjadalsá 54 Snæfellsnesvegi frá Borgarnesi vestur yfir Fróðárheiði og…Lesa meira

true

Þrír leikir voru í Lengjubikarnum um helgina

Þrjú lið af Vesturlandi spiluðu í Lengjubikarnum í knattspyrnu um helgina og var niðurstaðan einn sigur og tvö jafntefli. Leiknir R. og ÍA áttust við í A deild karla í riðli 4 í gær og var leikurinn í Breiðholti. Steinar Þorsteinsson kom Skagamönnum yfir strax á sjöttu mínútu leiksins en Shkelzen Veseli jafnaði metin fyrir…Lesa meira

true

Skólagjöld felld niður við Háskólann á Bifröst

Þau merku vatnaskil hafa orðið í sögu Háskólans á Bifröst að innheimta skólagjalda heyrir nú sögunni til. Í stað þeirra greiða stúdentar skráningargjald, eins og tíðkast hjá opinberu háskólunum. Samningar þessa efnist tókust nýlega á milli Háskólans á Bifröst og háskólaráðuneytisins. Aðdragandi málsins er sá að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskólaráðherra, bauð nýlega sjálfstætt starfandi háskólum…Lesa meira

true

Á leið til Spánar í æfingaferð

Á næstu dögum munu drengirnir í þriðja flokki Víkings frá Ólafsvík fara til Salou á Spáni í æfinga- og keppnisferð. Verða nokkrir foreldrar með í för ásamt þjálfara. Auk þess að æfa og keppa við bestu aðstæður þá verður margt annað skemmtilegt í boði fyrir drengina, eins og ferð í skemmtigarð til þess að hressa…Lesa meira

true

Breytingar hjá Tækniborg í Borgarnesi

Síðastliðinn föstudag urðu tímamót í versluninni Tækniborg í Hyrnutorgi í Borgarnesi. Ómar Örn Ragnarsson kaupmaður hefur sagt skilið við rekstur verslunarinnar en sonur hans, Jón Örn Ómarsson, tekur við í hans stað. Blaðamaður Skessuhorns fór í verslunarleiðangur og hitti fyrir Ómar Örn. „Ég er búinn að vera í þessu bransa síðan 2001 en til að…Lesa meira

true

Góð tíðindi af norsk-íslenskri síld í Barentshafi

Útlit er fyrir að þrír sterkir árgangar af norsk-íslenska síldarstofninum séu að alast upp í Barentshafi um þessar mundir. Þetta eru niðurstöður árlegs vistkerfisleiðangurs í Barentshafi sem er samvinnuverkefni Norðmanna og Rússa og greint er frá m.a. á vef norsku Hafrannsóknastofnunarinnar. Leiðangurinn var farinn á tímabilinu 10. ágúst til 7. október 2023 með þátttöku fjögurra…Lesa meira