Fréttir

true

Ferðamaður fékk grjót í höfuðið

Í liðinni viku voru höfð afskipti af 36 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Einnig voru hraðabrot 25 ökumanna mynduð með færanlegri hraðamyndavél. Einn ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og reyndist hann einnig vera sviptur ökuréttindum. Slys varð við Rauðfeldargjá á Snæfellsnesi. Varð það með þeim hætti að…Lesa meira

true

Tveir sendibílar ónýtir eftir bruna

Slökkvilið Borgarbyggðar var í hádeginu í dag kallað til vegna elds í tveimur bílum í Húsafelli. Viðbúnaður var talsverður enda var óttast að eldur næði að breiðast í gróður og nærliggjandi hús. Slökkvistarf gekk vel en báðir bílarnir eru ónýtir, eins og sjá má á myndinni. Eldsupptök eru rakin til þess að verið var að…Lesa meira

true

Framtíð fiskmarkaðar tryggð

Tekist hafa samningar milli Fiskmarkaðar Íslands og Faxaflóahafna um að tryggja áframhald rekstrar fiskmarkaðar við höfnina á Akranesi. Um nokkurra missera skeið hefur ríkt mikil óvissa um framtíð markaðarins með tilheyrandi óþægindum fyrir sjómenn og aðra hagsmunaaðila. Nú í byrjun vikunnar var málið leyst, samkvæmt heimildum Skessuhorns. Fiskmarkaður Íslands er búinn að semja við aðila…Lesa meira

true

Ísak Birkir í öðru sæti á Íslandsmótinu í keilu

Íslandsmót einstaklinga í keilu var haldið um helgina og þar átti Keilufélag Akraness marga keppendur. Ísak Birkir Sævarsson, Magnús Sigurjón Guðmundsson, Matthías Leó Sigurðsson, Tómas Freyr Garðarsson, Særós Erla Jóhönnudóttir og Vilborg Lúðvíksdóttir komust öll í milliriðil. Í undanúrslit, sem spiluð voru á mánudagskvöldið, komust Vilborg, Særós og Ísak. Þess má geta að Særós er…Lesa meira

true

Lionsklúbburinn hélt kútmagakvöld

Lionsklúbbur Grundarfjarðar stóð fyrir kútmagakvöldi síðastliðinn laugardag í sal Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Á borðum var fjölbreytt fiskmeti og að sjálfsögðu skipuðu kútmagar heiðurssess á veisluborðinu. Ágóði af kvöldinu rennur til kaupa á altæku ómskoðunartæki sem verður keypt og sett upp á heilsugæslustöð HVE í Grundarfirði. Samkvæmt heimildum Skessuhorns gekk fjáröflunin vel. Ágæt mæting var í veisluna…Lesa meira

true

Lögregla rannsakar flutning kinda yfir varnarlínu

Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að vísað hafi verið til lögreglu rannsókn á flutningi kinda yfir varnarlínur. „Matvælastofnun fékk ábendingu sl. haust um að tilteknir bændur á Vesturlandi hefðu flutt kindur yfir sauðfjárveikivarnarlínu sem er bannað skv. dýrasjúkdómalögum. Eftir rannsókn málsins var ákveðið að vísa því til lögreglu,“ segir í tilkynningu Mast.Lesa meira

true

Nóg að gera hjá fimleikafólki ÍA

Síðasta miðvikudag fór fram úrtökuæfing fyrir A landslið Íslands í hópfimleikum. Í kjölfarið var valið í úrvalshópa fyrir tímabilið en Fimleikasamband Íslands stefnir á að senda tvö A-landslið til keppni, kvennalið og blandað lið, á Evrópumótið í Baku í Azerbaijan í október á þessu ári. Skagakonan Guðrún Julianne Unnarsdóttir hefur æft með úrtakshópi kvenna í…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði stórt fyrir toppliðinu

Skallagrímur og ÍR mættust í 1. deild karla í körfu á föstudagskvöldið og var leikurinn í Fjósinu í Borgarnesi. Fyrir leik var ÍR á toppnum ásamt KR með 30 stig en Skallagrímur í 5. sæti með 20 stig. Gestirnir úr Breiðholti byrjuðu betur og voru ávallt skrefinu á undan fyrstu mínútur leiksins. Í stöðunni 11:14…Lesa meira

true

Vitafélagið hélt málþing um strandmenningu

Í Tónlistarskólanum á Akranesi var í gær haldið málþing um íslenska strandmenningu, en um mikilvægan menningararf er að ræða. Fræðafólk úr ýmsum áttum kom þar saman og kynnti ýmis málefni, allt frá strandmenningu fyrri tíma, fornleifauppgreftri við strendur Íslands og til strandmenningar í bókmenntum landsmanna. Pallborðsumræður undir handleiðslu Sigmundar Ernis Rúnarssonar fóru fram en ráðstefnunni…Lesa meira

true

Nýtt félag harmonikuvina slær upp gömludansaballi

Rælar, polkar, vínarkrussar, valsar, foxtrott, tangó og marzúkar, eru allt dansar sem landsmenn sem komnir eru til vits og ára þekkja frá gamalli tíð. Nú gefst áhugasömum á öllum aldri kostur á að reima á sig dansskóna því nýtt Félag harmonikuvina á Vesturlandi, í samstarfi við FEBAN, stendur fyrir sínu fyrsta „giggi“ föstudaginn 15. mars…Lesa meira