Svipmynd frá æfingu félagsins. Ljósm. gg

Nýtt félag harmonikuvina slær upp gömludansaballi

Rælar, polkar, vínarkrussar, valsar, foxtrott, tangó og marzúkar, eru allt dansar sem landsmenn sem komnir eru til vits og ára þekkja frá gamalli tíð. Nú gefst áhugasömum á öllum aldri kostur á að reima á sig dansskóna því nýtt Félag harmonikuvina á Vesturlandi, í samstarfi við FEBAN, stendur fyrir sínu fyrsta „giggi“ föstudaginn 15. mars næstkomandi. Ballið verður í sal félags eldri borgara við Dalbraut 4 á Akranesi og hefst klukkan 20 og stendur til kl. 23.

Nýtt félag harmonikuvina slær upp gömludansaballi - Skessuhorn