Hópurinn sem fer til Spánar. Ljósm. af

Á leið til Spánar í æfingaferð

Á næstu dögum munu drengirnir í þriðja flokki Víkings frá Ólafsvík fara til Salou á Spáni í æfinga- og keppnisferð. Verða nokkrir foreldrar með í för ásamt þjálfara. Auk þess að æfa og keppa við bestu aðstæður þá verður margt annað skemmtilegt í boði fyrir drengina, eins og ferð í skemmtigarð til þess að hressa upp á sálina. Í æfinga- og keppnisbúðirnar mæta yfir 300 lið frá 25 löndum og slegið verður upp móti sem kallast Costadaurada Cup en bærinn er skammt frá Barcelona.

Á leið til Spánar í æfingaferð - Skessuhorn