Fréttir

true

Einvígi aldarinnar var háð í Ólafsvík

Síðastliðinn föstudag bauð Skákskóli Snæfellsbæjar og Skákskóli Grundarfjarðar, sem Taflfélag Snæfellsbæjar rekur, útvöldum í skákeinvígi þar sem ungt skákfólk skoraði það eldra á hólm. Boðið var fólki sem kann að tefla en er ekki í taflfélaginu.  „Við í taflfélaginu kölluðum þetta einvígi aldarinnar,“ sagði Sigurður Scheving formaður félagsins í samtali við Skessuhorn. „Þetta virkar þannig…Lesa meira

true

Bændur kusu sér nýjan formann BÍ

Úrslit í formannskosningu Bændasamtaka Íslands voru kynnt í hádeginu í dag. Kosningin var rafræn og stóð yfir í tvo undangenga sólarhringa. Kosningarétt höfðu skuldlausir og skráðir félagar í Bændasamtökum Íslands við síðustu áramót, alls 2.428. Tveir voru í kjöri; Gunnar Þorgeirsson garðyrkjubóndi og fráfarandi formaður BÍ og Trausti Hjálmarsson sauðfjárbóndi á Suðurlandi. Alls kusu 1.314,…Lesa meira

true

Söngbræður hefja vordagskrá sína með tónleikum í Tónbergi á fimmtudaginn

Nýr undirleikari kynntur til leiks Karlakórinn Söngbræður er að hefja vordagskrá kórsins og er sitthvað á döfinni. Fyrstu tónleikarnir verða í Tónbergi á Akranesi fimmtudagskvöldið 7. mars klukkan 20. Miðar verða seldir við innganginn og kosta 3.000 krónur. Næst á dagskrá kórsins eru tónleikar laugardaginn 16. mars kl. 16 í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Fimmtudagur 11.…Lesa meira

true

Kvika heldur áfram að safnast undir Svartsengi

Skjálftavirkni við Sýlingarfell á Reykjanesi vegna kvikuhlaups sem hófst um kl. 16 í gær hjaðnaði jafnt og þétt eftir kl. 18 og var að mestu lokið eftir kl 20. Í nýrri frétt Veðurstofunnar segir að gögn bendi til þess að kvikuhlaupið í gær hafi stöðvast við Hagafell. Líkur á því að kvika komi upp í…Lesa meira

true

Lífið væri erfiðara án þeirra

Á Fiskmarkaði Snæfellsbæjar í Ólafsvík mátti í síðustu viku sjá unga skólastráka vera á fullu við að vinna við flokkun og raða fiski í kör. Andri Steinn Benediktsson framkvæmdastjóri fiskmarkaðsins segir í samtali við Skessuhorn að lífið væri talsvert erfiðara nyti þessara drengja ekki við. „Þetta eru hörkudrengir í vinnu og slá ekkert af þrátt…Lesa meira

true

Faxaflóahafnir og Skinney Þinganes hljóta forvarnaverðlaun VÍS

Forvarnaverðlaun VÍS voru afhent fyrr í vikunni. Verðlaunin hljóta þau fyrirtæki sem skara fram úr í öryggismálum og eru öðrum fyrirtækjum góð fyrirmynd. Verðlaunað er fyrir sterka öryggismenningu þar sem unnið er markvisst að því að efla öryggisvitund og öryggishegðun innan fyrirtækjanna. Hátækni sjávarútvegsfyrirtækið Skinney-Þinganes hlaut verðlaunin í flokki stærri fyrirtækja og hafnarþjónustufyrirtækið Faxaflóahafnir í…Lesa meira

true

Tónleikaferð Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Stykkishólm og Borgarnes

Sinfóníuhljómsveit Íslands kemur í Stykkishólm og heldur tónleika í íþróttahúsinu fimmtudagskvöldið 7. mars kl. 19.30. „Dagskrá tónleikanna skartar þremur verkum eftir höfuðtónskáld klassíska tímans en auk þess hljóma þrjú hugljúf íslensk lög í flutningi hljómsveitarinnar og sameinaðra kóra á Snæfellsnesi. Kórinn skipa um 80 söngvarar úr Kirkjukór Ólafsvíkurkirkju, Kirkjukór Grundarfjarðarkirkju, Karlakórnum Kára, Kirkjukór Ingjaldshólskirkju, Karlakórnum…Lesa meira

true

Samið um tveggja ára ríkisstuðning við Snorrastofu

Í byrjun febrúar undirrituðu Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, og Þorgeir Ólafsson formaður stjórnar Snorrastofu, samning til næstu tveggja ára um áframhaldandi stuðning ráðuneytisins við Snorrastofu í Reykholti. „Snorrastofa rekur fjölbreytta menningarstarfsemi í Reykholti. Á vegum stofnunarinnar eru stundaðar rannsóknir tengdar staðnum, bókmenntum og miðaldafræðum. Í Snorrastofu er bókhlaða, með bæði almennings- og sérfræðibókasafn,…Lesa meira

true

Bauhaus oftast með lægsta verðið

Verð í byggingavöruverslun Bauhaus í Reykjavík var oftast lægst í verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ sem framkvæmd var í Bauhaus, Byko og Húsasmiðjunni mánudaginn 26. febrúar sl. Í samanburðinum var verð skoðað á 203 vörum en aðeins sex vörur voru fáanlegar í öllum þremur verslununum. Bauhaus var með lægsta verðið á 140 vörum, Byko á 48 og…Lesa meira

true

Opnað fyrir framtalsskil einstaklinga í dag

Skattframtal einstaklinga er aðgengilegt á þjónustuvef Skattsins, www.skattur.is, frá og með deginum í dag 1. mars. Öllum sem náð hafa 16 ára aldri í lok árs 2023 ber að skila skattframtali og telja fram. Lokaskiladagur er 14. mars. Ef framteljendur hafa spurningar eða lenda í vandræðum með framtalið má velja ólíkar þjónustuleiðir. Meðal annars getur…Lesa meira