
Fulltrúar Faxaflóahafna sem tóku við viðurkenningu í flokki minni fyrirtækja. Ljósm. aðsend
Faxaflóahafnir og Skinney Þinganes hljóta forvarnaverðlaun VÍS
Forvarnaverðlaun VÍS voru afhent fyrr í vikunni. Verðlaunin hljóta þau fyrirtæki sem skara fram úr í öryggismálum og eru öðrum fyrirtækjum góð fyrirmynd. Verðlaunað er fyrir sterka öryggismenningu þar sem unnið er markvisst að því að efla öryggisvitund og öryggishegðun innan fyrirtækjanna. Hátækni sjávarútvegsfyrirtækið Skinney-Þinganes hlaut verðlaunin í flokki stærri fyrirtækja og hafnarþjónustufyrirtækið Faxaflóahafnir í flokki minni fyrirtækja.