Fréttir

true

ÍA hlýtur samfélagsstyrk Krónunnar

Krónan hefur nú valið félög og félagasamtök sem hljóta samfélagsstyrki til verkefna sem hvetja til hollustu og hreyfingar barna og/eða verkefna sem hafa jákvæð áhrif á uppbyggingu í nærsamfélagi Krónunnar á hverjum stað. Alls bárust yfir 300 umsóknir í ár sem er metaðsókn og eru langflestir styrkþegar staðsettir á landsbyggðinni. Eitt verkefni hlaut samfélagsstyrk á…Lesa meira

true

Kynningarfundir um sameiningarmál

Verkefnahópur um óformlegar sameiningarviðræður Borgarbyggðar og Skorradalshrepps boðaði til íbúafunda síðastliðinn miðvikudag. Rætt var um styrkleika, áskoranir og framtíðarsýn íbúa. Boðað var til tveggja funda sama daginn. Sá síðari var í Brún í Bæjarsveit um kvöldið, en hinn fyrri í Hjálmakletti síðdegis. Páll Snævar Brynjarsson framkvæmdastjóri SSV stýrði fundi. Þrír ráðgjafar KPMG fóru yfir stöðuna…Lesa meira

true

Þolinmæði launafólks á þrotum

Samninganefnd Verkalýðsfélags Akraness samþykkti á fundi sínum í gær að efna til kosningar um verkfall hjá ræstingafólki sem tilheyrir VLFA á hinum almenna vinnumarkaði. „Kosning mun hefjast um miðja næstu viku og ef það verður samþykkt, sem ég er ekki í nokkrum vafa um, þá mun verkfall geta hafist 25. mars næstkomandi,“ tilkynnti Vilhjálmur Birgisson…Lesa meira

true

Bændur kjósa um formann BÍ

Tveir eru í framboði til formanns Bændasamtaka Íslands en kosning hófst á miðnætti og stendur yfir til miðnættis annað kvöld. Gert er ráð fyrir að úrslit liggi fyrir í hádeginu á sunnudaginn. Í framboði eru Gunnar Þorgeirsson, garðyrkjubóndi í Ártanga og Trausti Hjálmarsson, sauðfjárbóndi Austurhlíð. Gunnar hefur gegnt embættinu frá 2020 og sækist eftir endurkjöri.…Lesa meira

true

Landburður af fiski í Snæfellsbæ – Svipmyndir af höfninni

Á miðvikudaginn var næstmesta afla ársins landað í Ólafsvík og í Rifi eða samtals 346 tonnum, en að sögn hafnarvarðar var 400 tonnum landað á þessum tveimur stöðum mánudaginn 19. febrúar og má því með sanni segja að vertíðin sé komin á fullt. Netabáturinn Ólafur Bjarnason tvílandaði á miðvikudaginn alls 38 tonnum í Ólafsvík og…Lesa meira

true

Fugl olli skammhlaupi og keðjuverkun rafmagnsbilana varð í kjölfarið

Mjög alvarleg og víðfeðm truflun varð eins og kunnugt er á afhendingu rafmagns í dreifikerfi Rarik á Mýrum og í Borgarfirði fimmtudaginn 15. febrúar síðastliðinn. Skessuhorn hefur ítrekað leitað eftir skýringum á ástæðum óhappsins hjá Rarik og hefur Rósant Guðmundsson samskiptastjóri Rarik nú brugðist við. Hann segir að fyrirvaralaus útleysing hafi orðið á 19 kV…Lesa meira

true

Framlengja frest til að tilnefna til landbúnaðarverðlauna

Matvælaráðuneytið óskar eftir tilnefningum til landbúnaðarverðlauna sem ráðherra veitir árlega í tengslum við Búnaðarþing. „Öllum er frjálst að senda inn tilnefningar um bændabýli eða önnur landbúnaðarfyrirtæki og félög sem talin eru hafa verið til fyrirmyndar að einhverju leyti í íslenskum landbúnaði á síðasta ári. Stutt greinargerð skal fylgja með tilnefningu þar sem fram koma helstu…Lesa meira

true

Samþykktu að veita hestamannafélaginu Dreyra afnot af beitarlandi

Erindi frá stjórn hestamannafélagsins Dreyra var tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar í gær. Í því kemur fram að stjórn Dreyra óski eftir að fá afnot af beitarlandi í eigu Hvalfjarðarsveitar. Um er að ræða svæði sem liggur norðan við Fannahlíð og niður að Eiðisvatni en þjóðvegur 1 skiptir landinu í tvennt, Bláberjaholt og Öskuhús/Selhæð.…Lesa meira

true

Elínarvegi við Miðvogsá lokað

Búið er að loka Elínarvegi norðan við Miðvogsá samkvæmt ákvörðun skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar. Þar hefur verið sett þrenging og hlið í þrenginguna. Á báðum endum Elínarvegar hefur vegurinn verið merktur sem botnlangagata. Þetta er gert til að draga úr gegnumakstri eftir veginum, annars vegar vegna hestareiðleiðar á norðurhluta vegarins og hins vegar til að…Lesa meira

true

Jökull ráðinn deildarstjóri Umhverfis- og skipulagsdeildar

Á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar í gær lagði Andrea Ýr Arnarsdóttir oddviti fram bókun um að sveitarstjórn samþykkti í ljósi og á grundvelli framkominnar uppsagnar umhverfisfulltrúa sveitarfélagsins að fallið yrði frá ráðningu í 100% starf skipulags- og byggingarfulltrúa. „Þess í stað verði stofnuð ný deild, Umhverfis- og skipulagsdeild, í því skyni að stuðla að framtíðar stöðugleika…Lesa meira