Elínarvegur er vinsæl gönguleið. Ljósm. akranes.is

Elínarvegi við Miðvogsá lokað

Búið er að loka Elínarvegi norðan við Miðvogsá samkvæmt ákvörðun skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar. Þar hefur verið sett þrenging og hlið í þrenginguna. Á báðum endum Elínarvegar hefur vegurinn verið merktur sem botnlangagata. Þetta er gert til að draga úr gegnumakstri eftir veginum, annars vegar vegna hestareiðleiðar á norðurhluta vegarins og hins vegar til að auka öryggi göngu- og hjólreiðafólks sem nýtir sér þessa fallegu leið til útivistar. Hliðið skal vera lokað öllum stundum en það er ekki læst svo að neyðaraðilar og aðrir komist í gegn ef með þarf og alltaf skal loka hliðinu á eftir sér.

Elínarvegi við Miðvogsá lokað - Skessuhorn