ÍA hlýtur samfélagsstyrk Krónunnar

Krónan hefur nú valið félög og félagasamtök sem hljóta samfélagsstyrki til verkefna sem hvetja til hollustu og hreyfingar barna og/eða verkefna sem hafa jákvæð áhrif á uppbyggingu í nærsamfélagi Krónunnar á hverjum stað. Alls bárust yfir 300 umsóknir í ár sem er metaðsókn og eru langflestir styrkþegar staðsettir á landsbyggðinni. Eitt verkefni hlaut samfélagsstyrk á Akranesi en hann féll ÍA í skaut. Íþróttabandalagið mun nota styrkinn til að stuðla frekar að uppbyggingu yngri flokka í körfubolta þar sem markmiðið er að efla lýðheilsu barna.

ÍA hlýtur samfélagsstyrk Krónunnar - Skessuhorn