
Hluti svæðisins er innan svokallaðs þynningarsvæðis sem skilgreint er vegna stóriðjunnar á Grundartanga.
Samþykktu að veita hestamannafélaginu Dreyra afnot af beitarlandi
Erindi frá stjórn hestamannafélagsins Dreyra var tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar í gær. Í því kemur fram að stjórn Dreyra óski eftir að fá afnot af beitarlandi í eigu Hvalfjarðarsveitar. Um er að ræða svæði sem liggur norðan við Fannahlíð og niður að Eiðisvatni en þjóðvegur 1 skiptir landinu í tvennt, Bláberjaholt og Öskuhús/Selhæð.