Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra afhendir Þorgrími Einari Guðbjartssyni og Helgu Elínborgu Guðmundsdóttur á Erpsstöðum í Dölum landbúnaðarverðlaunin 2023. Ljósm. Stjórnarráðið

Framlengja frest til að tilnefna til landbúnaðarverðlauna

Matvælaráðuneytið óskar eftir tilnefningum til landbúnaðarverðlauna sem ráðherra veitir árlega í tengslum við Búnaðarþing. „Öllum er frjálst að senda inn tilnefningar um bændabýli eða önnur landbúnaðarfyrirtæki og félög sem talin eru hafa verið til fyrirmyndar að einhverju leyti í íslenskum landbúnaði á síðasta ári. Stutt greinargerð skal fylgja með tilnefningu þar sem fram koma helstu upplýsingar um starfsemi tilnefndra ásamt rökstuðningi fyrir tilnefningunni. Verðlaunahafar geta verið allt að þrír,“ segir í tilkynningu.

Framlengja frest til að tilnefna til landbúnaðarverðlauna - Skessuhorn