
Vaskir ungir menn. Frá vinstri: Mateusz Dulinskas, Dawid Zuk, Kristian Sveinbjörn Sævarsson, Ellert Gauti Heiðarsson, Davíð Óskarsson og Victor Rúrik Michaelsson. Ljósm. af
Lífið væri erfiðara án þeirra
Á Fiskmarkaði Snæfellsbæjar í Ólafsvík mátti í síðustu viku sjá unga skólastráka vera á fullu við að vinna við flokkun og raða fiski í kör. Andri Steinn Benediktsson framkvæmdastjóri fiskmarkaðsins segir í samtali við Skessuhorn að lífið væri talsvert erfiðara nyti þessara drengja ekki við. „Þetta eru hörkudrengir í vinnu og slá ekkert af þrátt fyrir ungan aldur, en þeir eru frá 14 til 16 ára gamlir. Við getum kallað þá til þegar okkur vantar mannskap til vinnu þegar vel fiskast,“ sagði Andri. Strákarnir eru í þessari vinnu utan skólatíma og er þetta þrjá til fjóra tíma í senn, en skólinn gengur alltaf fyrir. „Við getum kallað til um tíu stráka sem eru allir boðnir og búnir til þess að koma þegar þörf er á,“ sagði Andri Steinn.