
Trausti Hjálmarsson sauðfjárbóndi er nýr formaður stjórnar Bændasamtaka Íslands. Ljósm. af FB.
Bændur kusu sér nýjan formann BÍ
Úrslit í formannskosningu Bændasamtaka Íslands voru kynnt í hádeginu í dag. Kosningin var rafræn og stóð yfir í tvo undangenga sólarhringa. Kosningarétt höfðu skuldlausir og skráðir félagar í Bændasamtökum Íslands við síðustu áramót, alls 2.428. Tveir voru í kjöri; Gunnar Þorgeirsson garðyrkjubóndi og fráfarandi formaður BÍ og Trausti Hjálmarsson sauðfjárbóndi á Suðurlandi. Alls kusu 1.314, sem gerir 54,12% kjörsókn.