
Breytingar hjá Tækniborg í Borgarnesi
Síðastliðinn föstudag urðu tímamót í versluninni Tækniborg í Hyrnutorgi í Borgarnesi. Ómar Örn Ragnarsson kaupmaður hefur sagt skilið við rekstur verslunarinnar en sonur hans, Jón Örn Ómarsson, tekur við í hans stað. Blaðamaður Skessuhorns fór í verslunarleiðangur og hitti fyrir Ómar Örn. „Ég er búinn að vera í þessu bransa síðan 2001 en til að byrja með verð ég með annan fótinn hér áfram hjá honum Jóni en ég var búinn að ákveða að þegar ég yrði 65 ára þá myndi ég hætta. Nú fer ég að einbeita mér að spila golf en ég stefni á 8 í forgjöf í sumar, taka fleiri myndir, ferðast og fara á Chelsea leiki,“ sagði Ómar, en hann stofnaði Tölvuþjónustu Vesturlands árið 2001, sameinaðist við Omnis 2005 og keypti sig svo úr þeim rekstri og stofnaði Tækniborg árið 2015.