
Borgarverk stendur í stórræðum í Djúpafirði. Ljósm. Framkvæmdafréttir VG
Staða framkvæmda á Vestfjarðavegi um Gufudalssveit og Dynjandisheiði
Í nýjum Framkvæmdafréttum Vegagerðarinnar er farið yfir stöðuna á vegaframkvæmdum á sunnanverðum Vestfjörðum og sagt að þær séu komnar á góðan rekspöl. Smám saman eru að verða til margfalt betri vegir um svæðið sem mun í framtíðinni m.a. bæta skilyrði til búsetu; flutninga vegna atvinnustarfsemi og auka ferðaþjónustu. Borgarverk vinnur að fyllingum í Djúpafirði og Gufufirði sem er fyrsta skref í brúargerð yfir firðina. Á Dynjandisheiði er unnið við annan áfanga í uppbyggingu vegarins og vonast til að þriðji og síðasti áfanginn verði boðinn út fyrir lok árs.