Fréttir

true

Lifir drauminn á Mýrunum

Rætt við Eyrúnu Eyþórsdóttur í Leirulækjarseli „Við ætlum okkur að verða gömul saman þarna. Þó ég haldi ennþá annað heimili í Reykjavík þá fer ég upp á Mýrar allar helgar, í fríum og stundum renni ég upp eftir á virkum dögum líka. Ég er með frábæra vinnuaðstöðu þar og útsýnið er sjúklegt. Það er alveg…Lesa meira

true

Snæfell skráði sig úr leik um sæti í úrslitakeppninni

Snæfell og Fjölnir áttust við í 3. umferð B deildar kvenna í Subway deildinni í körfuknattleik í gærkvöldi og var viðureignin í Stykkishólmi. Leikurinn var mjög mikilvægur í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni en fyrir leik var Fjönir með sex stig og Snæfell fjögur. Leikurinn fór frekar rólega af stað, staðan var 9-8 Snæfelli í…Lesa meira

true

ÞÞÞ og KFÍA gera samning til þriggja ára

Bifreiðastöð ÞÞÞ á Akranesi og Knattspyrnufélag ÍA hafa undirritað samstarfssamning til þriggja ára. Þetta kemur fram á FB síðu félagsins en ÞÞÞ hefur verið einn af helstu styrktaraðilum KFÍA frá því að elstu menn muna og stuðningurinn verið ómetanlegur eins og segir í fréttinni. „Bifreiðastöð ÞÞÞ hefur reynt að standa þétt við bakið á íþróttastarfinu…Lesa meira

true

Íbúafundir í dag vegna óformlegra sameiningarviðræðna

Verkefnahópur um óformlegar sameiningarviðræður sveitarfélaganna Borgarbyggðar og Skorradalshrepps boðar í dag til tveggja íbúafunda í því skyni að eiga samráð við íbúa varðandi mögulega sameiningu sveitarfélaganna m.a. út frá styrkleikum, áskorunum og framtíðarsýn íbúa. Fundirnir verða báðir í dag, miðvikudginn 28. febrúar. Sá fyrri verður í Hjálmakletti í Borgarnesi klukkan 17-19 en síðari fundurinn er…Lesa meira

true

Kári vann góðan sigur á KFG

Kári og KFG úr Garðabæ mættust í B deild Lengjubikars karla í knattspyrnu í gærkvöldi og var leikurinn í Akraneshöllinni. Kári leikur í 3. deild í sumar en KFG í annarri deild og ljóst að við ramman reip yrði að draga fyrir heimamenn. Káramenn komust yfir í fyrri hálfleik þegar Hektor Bergmann Garðarsson skoraði á…Lesa meira

true

Verslunin Lykkjan opnar á Akranesi

Hannyrðaverslunin Gallerý Snotra á Kirkjubraut 5 á Akranesi hefur verið starfrækt frá árinu 2014 en Sigurlína Júlíusdóttir eigandi verslunarinnar tók þá ákvörðun á dögunum að hætta rekstri verslunarinnar. Í einum hluta Gallerý Snotru var einnig vefverslunin Litla músin sem var með heimasaumuð barnaföt og hafði verið þar í þrjú ár en er ekki þar lengur.…Lesa meira

true

Eyjabændur boða til fundar í Lyngbrekku

Boðað hefur verið til opins umræðufundur eiganda sjávarjarða. Verður hann haldinn miðvikudaginn 6. mars klukkan 16 í félagsheimilinu Lyngbrekku. Fundarboð hafa verið send til skráðra eigenda eyja, skerja og hólma sem eiga hagsmuna að gæta vegna nýlega fram kominnar kröfu ríkisins. „Ólafur Björnsson lögfræðingur mun mæta og fara yfir málin með okkur og hver okkar…Lesa meira

true

Hótel Vesturland opnað í Borgarnesi

Halldóra Guðjónsdóttir hótelstjóri og Bjarni Rúnar Bequette veitingamaður opna Hótel Vesturland fyrir gesti föstudaginn 1. mars næstkomandi. Halldóra og Bjarni eru í hlaupagöllum þessa daga að gera allt klárt fyrir opnun hótelsins sem fram undir þetta gekk undir nafninu B59 við Borgarbraut 59 í Borgarnesi. „Við fengum rekstrarleyfið á föstudaginn síðasta og erum að bíða…Lesa meira

true

Mældust á tvöföldum hámarkshraða

Í liðinni viku voru höfð afskipti af um 33 ökumönnum í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi vegna of hraðs aksturs, þar af voru þrír ökumenn sem mældust á nærri tvöföldum hámarkshraða þar sem hámarkshraði er 30 km/klst. Hraðabrot voru mynduð hjá 81 ökumanni með færanlegri hraðamyndavél embættisins. Nokkrir ökumenn voru stöðvaðir og kærðir vegna símanotkunar við…Lesa meira

true

Hlúð að félagsheimilinu Skildi í Helgafellssveit

Dreifbýlisráð Sveitarfélagsins Stykkishólms fjallaði á fundi sínum fyrir stuttu um Félagsheimilið Skjöld í Helgafellssveit, enda hafði bæjarráð falið bæjarstjóra að taka málefni hússins og viðhaldsþörf upp að nýju með tilliti til forgangsröðunar í viðhaldsmálum. Þar á meðal á að tímasetja nauðsynlegar viðhaldsframkvæmdir svo húsnæðið verði tilbúið til notkunar í síðasta lagi 1. júní þegar ferðaþjónustan…Lesa meira