
Hlúð að félagsheimilinu Skildi í Helgafellssveit
Dreifbýlisráð Sveitarfélagsins Stykkishólms fjallaði á fundi sínum fyrir stuttu um Félagsheimilið Skjöld í Helgafellssveit, enda hafði bæjarráð falið bæjarstjóra að taka málefni hússins og viðhaldsþörf upp að nýju með tilliti til forgangsröðunar í viðhaldsmálum. Þar á meðal á að tímasetja nauðsynlegar viðhaldsframkvæmdir svo húsnæðið verði tilbúið til notkunar í síðasta lagi 1. júní þegar ferðaþjónustan verður komin í fullan gang. Bæjarráð lagði einnig til að hússtjórn útfærði og auglýsti eftir umsjónarmanni með Skildi næsta sumar. Dreifbýlisráð og hússtjórn ræddu málið ásamt öðrum fulltrúum eigenda félagsheimilisins og samþykkti fyrir sitt leyti að hefja viðhaldsframkvæmdir á snyrtingum í samræmi við fyrirliggjandi teikningar. Var formanni dreifbýlisráðs falið að fylgja málinu eftir.