
Eyjabændur boða til fundar í Lyngbrekku
Boðað hefur verið til opins umræðufundur eiganda sjávarjarða. Verður hann haldinn miðvikudaginn 6. mars klukkan 16 í félagsheimilinu Lyngbrekku. Fundarboð hafa verið send til skráðra eigenda eyja, skerja og hólma sem eiga hagsmuna að gæta vegna nýlega fram kominnar kröfu ríkisins. „Ólafur Björnsson lögfræðingur mun mæta og fara yfir málin með okkur og hver okkar næstu skref þurfa að vera. Ég tek fram að það verður enginn, mér vitanlega, á fundinum frá Óbyggðanefnd eða ríkinu þannig að það verður ekki hægt að fá svör við spurningum sem eiga að beinast þangað,“ segir Nellý Pétursdóttir á Sveinsstöðum sem boðar til fundarins.