Haddý er eigandi Lykkjunnar. Ljósm. vaks

Verslunin Lykkjan opnar á Akranesi

Hannyrðaverslunin Gallerý Snotra á Kirkjubraut 5 á Akranesi hefur verið starfrækt frá árinu 2014 en Sigurlína Júlíusdóttir eigandi verslunarinnar tók þá ákvörðun á dögunum að hætta rekstri verslunarinnar. Í einum hluta Gallerý Snotru var einnig vefverslunin Litla músin sem var með heimasaumuð barnaföt og hafði verið þar í þrjú ár en er ekki þar lengur. Skagamenn og nærsveitungar þurfa hins vegar ekki að örvænta því næsta föstudag opnar ný handavinnuverslun í sama húsnæði og nefnist hún Lykkjan. Eigandi er Hallfríður Jóna Jónsdóttir, eða Haddý eins og hún er oftast kölluð. Blaðamaður Skessuhorns kom við í Lykkjunni fyrir helgi þar sem Haddý var á fullri ferð að koma öllu í stand ásamt Línu í Snotru sem var að aðstoða hana en Haddý gaf sér tíma til að setjast niður í smástund til að segja frá nýju versluninni sinni.