Fréttir

true

Samþykktu að veita hestamannafélaginu Dreyra afnot af beitarlandi

Erindi frá stjórn hestamannafélagsins Dreyra var tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar í gær. Í því kemur fram að stjórn Dreyra óski eftir að fá afnot af beitarlandi í eigu Hvalfjarðarsveitar. Um er að ræða svæði sem liggur norðan við Fannahlíð og niður að Eiðisvatni en þjóðvegur 1 skiptir landinu í tvennt, Bláberjaholt og Öskuhús/Selhæð.…Lesa meira

true

Elínarvegi við Miðvogsá lokað

Búið er að loka Elínarvegi norðan við Miðvogsá samkvæmt ákvörðun skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar. Þar hefur verið sett þrenging og hlið í þrenginguna. Á báðum endum Elínarvegar hefur vegurinn verið merktur sem botnlangagata. Þetta er gert til að draga úr gegnumakstri eftir veginum, annars vegar vegna hestareiðleiðar á norðurhluta vegarins og hins vegar til að…Lesa meira

true

Jökull ráðinn deildarstjóri Umhverfis- og skipulagsdeildar

Á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar í gær lagði Andrea Ýr Arnarsdóttir oddviti fram bókun um að sveitarstjórn samþykkti í ljósi og á grundvelli framkominnar uppsagnar umhverfisfulltrúa sveitarfélagsins að fallið yrði frá ráðningu í 100% starf skipulags- og byggingarfulltrúa. „Þess í stað verði stofnuð ný deild, Umhverfis- og skipulagsdeild, í því skyni að stuðla að framtíðar stöðugleika…Lesa meira

true

Jafntefli hjá ÍA og Víkingi R. í Lengjubikarnum

ÍA fékk Víking Reykjavík í heimsókn í Akraneshöllina í gærkvöldi í fjórðu umferð í riðli 4 í A deild Lengjubikarsins í knattspyrnu karla. Fyrir leik voru Skagamenn í 2. sæti með sex stig og Víkingur með fimm stig í 4. sæti. Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik en Árni Marinó Einarsson markvörður ÍA varði…Lesa meira

true

Fjármálaráðherra ásælist túnin á Brekku

Í kröfum fjármálaráðherra fyrir hönd óbyggðanefndar, sem ber yfirskriftina eyjar og sker, er ríkið ekki einvörðungu að gera kröfur um eyjar, sker og hólma utan við strandlengjuna. Gerðar eru kröfur um land langt inni í landi sem svo óheppilega vill til að bera nafn með endingunni “ey” eða “hólmi”. Sem dæmi er gerð krafa í…Lesa meira

true

Rafmagnstruflanir víða í morgun

Í morgun varð rof á afhendingu rafmagns á nokkrum stöðum í Borgarbyggð, samkvæmt upplýsingasíðu Rarik. Svo virðist sem allir staðir séu komnir að nýju með rafmagn. Straumlaust varð í Borgarnesi frá klukkan 08-9:15, í Reykholtsdal á sama tíma, á Mýrum klukkan 7 í morgun og við Skeljabrekku í Andakíl frá klukkan 7:30 til 9:15. Ekki…Lesa meira

true

Aron Ingi Íþróttamaður Snæfells 2023

Körfuknattleiksmaðurinn Aron Ingi Hinriksson hefur verið valinn Íþróttamaður Snæfells fyrir árið 2023. Þetta var tilkynnt í hálfleik Snæfells og Fjölnis í Subway deild kvenna í körfuknattleik á þriðjudagskvöldið. „Aron Ingi hefur í gegnum tíðina lagt mikið á sig til þess að spila fyrir Snæfell. Hann lék með Snæfelli á meðan hann lærði rafvirkjann á höfuðborgarsvæðinu…Lesa meira

true

Snorrastofa í samstarf við Háskólann í Tbilisi í Georgíu

Guðni Th Jóhannesson forseti Íslands fer í opinbera heimsókn til Georgíu í fyrstu viku marsmánaðar og verður Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu, í sendinefnd Íslands í heimsókninni. Miðvikudaginn 6. mars mun Bergur undirrita samstarfssamning við Skandinavíudeild Háskólans í Tbilisi (Center for Scandinavian Studies) að viðstöddum forsetanum, sem í kjölfarið flytur fyrirlestur við skólann. „Markmiðið með samningnum…Lesa meira

true

Setur stefnuna á Ólympíuleikana

Guðrún Karítas bætir þessa dagana Íslandsmet í hverju kasti Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir er 22 ára og frá Vatnshömrum í Andakíl. Hún byrjaði ung að æfa íþróttir og var öflug í fótbolta, körfubolta og frjálsum íþróttum. Hún æfði kúluvarp á yngri árum en vill þó meina að hún hafi ekki verið sérlega góð í greininni. „Ég…Lesa meira

true

Lögreglan kom í heimsókn

Í síðustu viku kom lögreglan í heimsókn í leikskólann Skýjaborg í Hvalfjarðarsveit. Hún átti gott spjall við elstu tvo árgangana í leikskólanum um mikilvægi þess að nota bílstólinn sinn, vera í bílbelti og nota endurskinsmerki. Börnin fengu mynd af lögreglu og börnum til að lita. Að lokum gaf hún öllum börnum í leikskólanum endurskinsmerki svo…Lesa meira