
Fátt er óbyggðanefnd og fjármálaráðuneytinu heilagt. Gerð er krafa um að hluti túnanna á Brekku falli undir þjóðlendukröfu ríkisins og bændur þurfa því að taka til varna. Ljósm. Þórhildur Þorsteinsdóttir
Fjármálaráðherra ásælist túnin á Brekku
Í kröfum fjármálaráðherra fyrir hönd óbyggðanefndar, sem ber yfirskriftina eyjar og sker, er ríkið ekki einvörðungu að gera kröfur um eyjar, sker og hólma utan við strandlengjuna. Gerðar eru kröfur um land langt inni í landi sem svo óheppilega vill til að bera nafn með endingunni "ey" eða "hólmi". Sem dæmi er gerð krafa í Kerlingarhólma og Hólsey í Norðurárdal í Borgarfirði og Nauthólmasker frá Ferjubakka.