
Svipmynd frá Tbilisi í Georgíu. Ljósm. Bergur Þorgeirsson
Snorrastofa í samstarf við Háskólann í Tbilisi í Georgíu
Guðni Th Jóhannesson forseti Íslands fer í opinbera heimsókn til Georgíu í fyrstu viku marsmánaðar og verður Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu, í sendinefnd Íslands í heimsókninni. Miðvikudaginn 6. mars mun Bergur undirrita samstarfssamning við Skandinavíudeild Háskólans í Tbilisi (Center for Scandinavian Studies) að viðstöddum forsetanum, sem í kjölfarið flytur fyrirlestur við skólann.