Rafmagnstruflanir víða í morgun

Í morgun varð rof á afhendingu rafmagns á nokkrum stöðum í Borgarbyggð, samkvæmt upplýsingasíðu Rarik. Svo virðist sem allir staðir séu komnir að nýju með rafmagn. Straumlaust varð í Borgarnesi frá klukkan 08-9:15, í Reykholtsdal á sama tíma, á Mýrum klukkan 7 í morgun og við Skeljabrekku í Andakíl frá klukkan 7:30 til 9:15. Ekki er nema hálfur mánuður síðan mun víðtækari og lengri rafmagnstruflanir urðu á þessum svæðum. Skessuhorn hefur spurt út í ástæðu rafmagnsbilana 16. febrúar en skýringar hafa ekki fengist.

Rafmagnstruflanir víða í morgun - Skessuhorn