Fréttir

true

Eldur í tæknirými á Hótel Hamri í morgun og rýma þurfti hótelið

Klukkan 5:26 í morgun var allur tiltækur mannskapur hjá Slökkviliði Borgarbyggðar í Borgarnesi kallaðar út að Hótel Hamri. Þar var eldur laus í rafmagnstöflu í tæknirými á hótelinu. Að sögn Heiðars Arnar Jónssonar slökkviliðsstjóra var um mikinn viðbúnað að ræða enda gestir í öllum herbergjum á hótelinu. Rýming þess gekk þó hratt og vel. „Þetta…Lesa meira

true

Eldgos hófst í morgun norðan við Grindavík

Eldgos hófst úr þriggja kílómetra langri sprungu norðan við Grindavík klukkan rúmlega sex í morgun. Sprungan liggur frá Sundhnúk í suðri til austurenda Stóra-Skógfells. Hraun rennur því mestmegnis til vesturs á þessu stigi. Grindavíkurbær var mannlaus í nótt og tafarlaust hófst rýming í Bláa lóninu þegar mælar sýndu gosóróa, skömmu áður en hraun náði að…Lesa meira

true

Fengu þoturassa að gjöf

Foreldrafélag Brekkubæjarskóla á Akranesi gaf skólanum 24 ,,þoturassa“ á dögunum. Þeir koma sér heldur betur í góðar þarfir þessa dagana þar sem hóllinn á skólalóðinni er þéttskipaður börnum á fleygiferð í snjónum í öllum frímínútum.Lesa meira

true

Slökkvilið Stykkishólms býður til afmælisveislu

Laugardaginn 10. febrúar næstkomandi verða liðin 110 ár síðan stofnað var formlegt slökkvilið í Stykkishólmi en reglugerð um slökkvilið var sett þann dag árið 1914. Fyrsta brunadælan kom í Stykkishólm haustið 1913 og er hún enn til og varðveitt af slökkviliðinu. Fyrsta samþykkt um brunavarnir er nokkuð eldri eða frá 22. febrúar 1881 en hún…Lesa meira

true

Emilía og Birnir voru vinsælustu nöfnin 2023

Birnir var vinsælasta fyrsta eiginnafn meðal nýfæddra drengja á síðasta ári en 30 drengjum var gefið nafnið Birnir, en þar á eftir koma nöfnin Emil, Elmar og Jón. Þá var Emilía vinsælasta nafnið meðal nýfæddra stúlkna sem fyrsta eiginnafn, en 23 stúlkum var gefið nafnið Emilía, þar á eftir eru nöfnin Sara, Sóley, Embla og…Lesa meira

true

Bjarki aðstoðar Guðmund Inga

Dr. Bjarki Þór Grönfeldt frá Brekku í Norðurárdal hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, frá Brúarlandi á Mýrum. Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að meðfram doktorsnámi í Kent á Englandi hafi Bjarki kennt sálfræði og tölfræði á bæði grunn- og meistarastigi. Frá lokum doktorsprófs hafi Bjarki starfað við kennslu og…Lesa meira

true

Myndlistarsýning opnuð í Safnahúsi á morgun

Á morgun, fimmtudaginn 8. febrúar klukkan 16-18, verður í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi opnuð sýningin „Á móti straumnum.“ Á sýningunni í Hallsteinssal verða verk eftir 12 íslenskar listakonur; þar á meðal Nínu Tryggvadóttur, Gerði Helgadóttur og Ásgerði Búadóttur. Listakonurnar eiga það sammerkt að hafa þurft að synda á móti straumnum í listaheimi þar sem karlar…Lesa meira

true

Formaður Samfylkingarinnar heimsótti í dag fyrirtæki á Grundartanga og Akranesi

Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar var í dag á ferð um Akranes og Hvalfjarðarsveit. Heimsótti hún fyrirtæki á Grundartanga í morgun og eftir hádegið á Akranesi. Ræddi hún við starfsfólk og stjórnendur um hvað helst brennur á fólki. Komið var við hjá Elkem og Líflandi á Grundartanga en síðan á Akranesi var farið á Breið, Baader…Lesa meira

true

Mistök Advania urðu til þess að tilnefna þarf biskupsefni að nýju

Komið hefur í ljós að vegna tæknilegra mistaka hjá Advanía, þjónustuaðila vegna biskupskosninga, verður ekki unnt að telja tilnefningar til biskupskjörs með öruggum hætti. Á vef Þjóðkirkjunnar kemur fram að kjörstjórn telji í ljósi mistakanna rétt að endurtaka tilnefningarnar eins fljótt og unnt er og verður stefnt að því að þær hefjist að nýju fyrir…Lesa meira

true

Mjög gott hljóðið í aðilum ferðaþjónustu á Vesturlandi – Rætt um stöðuna og horfurnar framundan

Ferðaþjónustan hefur verið á hraðri leið upp síðustu ár á Íslandi og fjöldi erlendra ferðamanna er alltaf að aukast ár frá ári. Því er nú spáð að gestafjöldi til landsins gæti orðið 2,2 – 2,4 milljónir á þessu ári. Skessuhorn heyrði hljóðið í nokkrum ferðaþjónustuaðilum á Vesturlandi og forvitnaðist hvernig staðan væri nú í byrjun…Lesa meira