
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar og Valgarður Lyngdal Jónsson oddviti í bæjarstjórn Akraness. Ljósm. mm
Formaður Samfylkingarinnar heimsótti í dag fyrirtæki á Grundartanga og Akranesi
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar var í dag á ferð um Akranes og Hvalfjarðarsveit. Heimsótti hún fyrirtæki á Grundartanga í morgun og eftir hádegið á Akranesi. Ræddi hún við starfsfólk og stjórnendur um hvað helst brennur á fólki. Komið var við hjá Elkem og Líflandi á Grundartanga en síðan á Akranesi var farið á Breið, Baader / Skagann 3X, Akur, Akraborg og að endingu á skrifstofu verkalýðsfélagsins. Í stuttu spjall við blaðamann Skessuhorns í hádeginu sagði Kristrún að heimsóknir sem þessar væru hluti af málefnavinnu flokks hennar. Verið væri að móta stefnuna og nú eru samgöngur og atvinnumál efst á baugi í þeirri vinnu. Í þessari heimsókn voru orkumál og nýting náttúruaðlinda ofarlega í huga fólks.