
Ljósmynd úr eftirlitsflugi Landhelgisgæslunnar í morgun. Stóra-Skógfell í forgrunni og ljósin í orkuverinu í Svartsengi hægra megin. Ljósm. Björn Oddsson
Eldgos hófst í morgun norðan við Grindavík
Eldgos hófst úr þriggja kílómetra langri sprungu norðan við Grindavík klukkan rúmlega sex í morgun. Sprungan liggur frá Sundhnúk í suðri til austurenda Stóra-Skógfells. Hraun rennur því mestmegnis til vesturs á þessu stigi. Grindavíkurbær var mannlaus í nótt og tafarlaust hófst rýming í Bláa lóninu þegar mælar sýndu gosóróa, skömmu áður en hraun náði að brjóta sér leið upp á yfirborðið.
Bjarminn frá gosinu sést víða á suðvesturhorni landsins. Frá Akranesi er eldgosið tilkomumikið að sjá og fjölmargir íbúar sem hafa lagt leið sína á Jaðarsbrautina til að berja það augum.
